28.1.2007 | 04:40
Vúhú
Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2007 | 13:37
Skilgreining á góðum og slæmum drætti
Þessi speki er í boði snillingsins Brylla á vefsvæðinu www.brylli.com
Brylli er frábær, tékk him át at www.brylli.com
Munið www.brylli.com
Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2007 | 10:37
Þorrablót Eyjafjarðarsveitar
Að öðru, þá vantar mig einhvern til að kenna mér tölfræði. Þessi kennari er alls ekki að gera sig og ruglar mig meira en að kenna mér. Þá er betra að fá einhvern sem kann og gera það núna en ekki korter fyrir próf. Anyone out there?
Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2007 | 09:32
Face off, face on
Bara að drepa tíma áður en ég fer í tíma.
Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2007 | 18:45
Ó Ó Ó Ó og smá Á
Ó mig auma! Vesalings vesalings magavöðvarnir mínir! 500 magaæfingar á 3 dögum og vöðvarnir öskra á náð og miskunn. Hlusta ég? Ónei ég labba frekar eins og krypplingur og læt sem ég heyri ekki í þeim. Bjarg er alveg að bjarga mittinu ójá. Bráðum verð ég með alveg nákvæmlega eins maga og David Hasselhoff þegar hann var upp á sitt besta múhahahaha múhahahaha múhahahahaha.
Hitti Sollu mína í mýflugumynd í dag. Hún afhenti mér miða á þorrablótið ógurlega. Veit að það verður í Hrafnagili en hvar nákvæmlega hef ég ekki hugmynd um. Seinni tíma vandamál, geta varla verið svo mörg hús þarna . Á morgun verður sem sagt arkað í mjólkurbúðina og verslað smá söngvatn, líklega í formi ópal/tópas skots og svo væri nú alveg upplagt að skella í sig fríhafnarhvítvíninu fyrst það er ennþá óopnað í ísskápnum. Þorrabakkinn verður þó frekar fátæklegur en það er bara allt í lagi, það á ekkert að borða ónýtan mat. Bannað að hringja fyrir klukkan 16:00 á sunnudaginn!
Annars ekkert nýtt, bara sama gamla tuggan.
Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2007 | 20:20
Fitter or fatter?
Engin friður fyrir HMbullum. Allt í botni í ræktinni og mátti sjá æðisglampann í augum fólks sem safnaðist fyrir framan skjái stöðvarinnar í staðinn fyrir að púla.
Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2007 | 10:30
Alveg er það merkilegt
Komst að því að Sæunn er búin að breyta mér í merkjasnobb. Baðherbergisskáparnir mínir eru að verða undirlagðir af Comfort Zone snyrtivörulínunni. Áður var ég kona sem reif Nivea úr hillunni í Bónus án þess að hugsa mig um. Núna get ég ekki hugsað mér að vera án Comfort Zone. Dagkremið mitt er að klárast en sem betur fer er dílerinn minn (Sæunn) að fara að vinna í Mekka Comfort Zones svo ég verð í góðum málum. Hvað er að verða að sveitalúðanum mér sem notaði varla dagkrem fyrir nokkrum árum? Neiiiiiii ég vil ekki verða yfirborðskenndur tískuþræll. Hvar er flíspeysan mín?!?
Hef ekkert merkilegt að segja í dag frekar en hinn daginn. Ætla ekki að horfa á handboltann. Ætla hinsvegar niður í Bjarg strax eftir skóla og svitna helling.
Elsk'ykkur öll, þökk sé nýju kápunni minni.
Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2007 | 20:39
Almáttugur minn!!
Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2007 | 18:10
Til Sæunnar
Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2007 | 14:28
Vor, nei ég meina hor
Það er von fyrir hagfræðina, mér finnst nefnilega rekstrarhagfræðin alveg ágætlega skemmtileg en þjóðhagfræðin er það hinsvegar alls ekki.
Þurfti að æða með Írisi upp á slysó þegar ég kom heim úr skólanum. Stelpurassinn var búin að skera sig og þurfti að sauma nokkur spor í olnbogann hennar. Nú labbar hún eins og krókódíll hafi bitið stykki úr handleggnum, sárþjáð í stíl við fyrirferðarmiklar umbúðirnar.
Er komin í fitness keppni við Sæunni, hvor okkar verður undan að fá þvottabrettamaga?!?
Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)