7.1.2007 | 19:16
Merkilegt..
Hvað maður fyllist alltaf af mikilli blogggleði þegar maður á að vera að læra undir próf. Og af því að ég er svo bloggglöð þá má ég til með að deila með ykkur matseðli dagsins.
Morgunmatur: Afgangshangikjöt með afgangs uppstúf, baunum og rauðkáli, malt og appelsín.
Hádegismatur: Afgangshangikjöt steytt úr hnefa og afgangshangikjötssamloka, malt og appelsín.
Kaffitími: Afgangshangikjötsamloka, malt og appelsín.
Kvöldmatur: Afgangshangikjötsamloka, malt og appelsín, mandarína.
Kvöldkaffi: Örugglega afgangshangikjötsamloka.
Skil ekkert afhverju ég er uppbelgd og leysandi vind í gríð og erg? Sem betur fer á ég núna boxaraheilsugrill og þar munu kjúllabringur og lax krauma næstu vikurnar. George Foreman er flottur karl.

Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning