Kjóll

Kjóllinn kominn í hús, hefur verið mátaður og er bara æðislegur. Engin þörf á gulrótarkúrnum og ég er nákvæmlega eins og dökkhærð Marilyn Monroe í honum, svona næstum því. Nú verður Þórður bara að kaupa sér hárrauð satín jakkaföt til að vera í stíl við mig.
Var annars að skoða áfangastaðir og hvað er hægt að gera á hverjum stað fyrir sig og rak þá augun í rómantíska sundferð með gæfum gaddaskötum á Grand Cayman. Mælt er með þessari ferð en fólk vinsamlegast beðið um að passa sig á halanum. Ætti ég?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og fjórum?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband