24.1.2007 | 10:30
Alveg er það merkilegt
Hvað smávægilegir hlutir geta glatt mitt kvenmanns hjarta. Verslaði mér kápu og er hamingjusamari sem aldrei fyrr. Svíf um stræti Akureyrar (nöfnin á strætum Akureyrar eru reyndar efni í sér blogg) í nýju kápunni með bros á vör.
Komst að því að Sæunn er búin að breyta mér í merkjasnobb. Baðherbergisskáparnir mínir eru að verða undirlagðir af Comfort Zone snyrtivörulínunni. Áður var ég kona sem reif Nivea úr hillunni í Bónus án þess að hugsa mig um. Núna get ég ekki hugsað mér að vera án Comfort Zone. Dagkremið mitt er að klárast en sem betur fer er dílerinn minn (Sæunn) að fara að vinna í Mekka Comfort Zones svo ég verð í góðum málum. Hvað er að verða að sveitalúðanum mér sem notaði varla dagkrem fyrir nokkrum árum? Neiiiiiii ég vil ekki verða yfirborðskenndur tískuþræll. Hvar er flíspeysan mín?!?
Hef ekkert merkilegt að segja í dag frekar en hinn daginn. Ætla ekki að horfa á handboltann. Ætla hinsvegar niður í Bjarg strax eftir skóla og svitna helling.
Elsk'ykkur öll, þökk sé nýju kápunni minni.

Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning