Bojojong

Bjargvættur Guðbjargar var líkamsræktarstöðin Bjarg sem bjargaði henni alveg. Mikið er gott að vera farin að sprikla aftur. Svo er George Foreman lín mín fatrídjúsíng grillíng massín alveg snilldar græja líka. Hendi bara kvöldmatnum eins og hann leggur sig, kjöt/fisk/grænmeti, á græjuna og voila veislumáltíð.
Fór í Pennann í dag til að athuga með skólabækur. Meðalverð bókar er um 6500 krónur svo ég snarhætti við kaupinn og ætla í víðtæka leit um internetið að þeim í staðinn. Veskinu mínu er búið að verkja mikið síðustu mánuði og nú er kominn tími á að lina kvalir þess.
Er alvarlega að íhuga Spánarferð í sumar. Kostar 300 þús. að fara í pakkaferð fyrir okkur öll í 2 vikur með ferðaskrifstofum frónbúa en ef ég myndi kaupa flug út og leigja sumarhús/íbúð þá lækkar kostnaðurinn um næstum helming. Sem er örlítið meira en ef ég færi með stóðið til Costa del Hörby.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og níu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband