Makalaus konudagur

Í morgun fékk ég að sofa út alveg þar til að börnin vöknuðu og vöktu mig um leið. Ég skrönglaðist svo inn í eldhús og útbjó morgunverð sem ég færði svo sjálfri mér í rúmið. Mér fannst ég vera ofsalega hugguleg við mig. Núna er ég að spöglera í því hvort að ég eigi að hringja og láta senda mér blómvönd. Þarf fyrst að upphugsa eitthvað afskaplega rómantískt og fallegt til að skrifa í kortið, það myndi svo mikið gleðja mig. Alveg er ég handviss um að þetta verður rómantískasti dagur lífs míns.
BOLLUDAGUR Á MORGUN!!!!!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og níu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband