24.1.2007 | 20:20
Fitter or fatter?
Magavöðvarnir mínir eru emjandi af kvölum. 300 magaæfingar á 2 dögum hafa riðið þeim að fullu (hættið að hugsa dónalega!). En betur má ef duga skal og þeir verða sko bara að sætta sig við það sem koma skal. Þarf að fara að læra á þessi tæki á stöðinni. Þau eru allt allt allt öðruvísi en tækin sem ég var vön að nota fyrir vestan. Vil síður gera mig að fífli og snúa jafnvel öfugt í einhverri græjunni. Því hefur verið ákveðið að pína einhvern einkaþjálfarann í það að kenna mér á allt draslið sem og útbúa fyrir mig gott prógram til að fara eftir. Skjaldbakan mun vinna!
Engin friður fyrir HMbullum. Allt í botni í ræktinni og mátti sjá æðisglampann í augum fólks sem safnaðist fyrir framan skjái stöðvarinnar í staðinn fyrir að púla.
Engin friður fyrir HMbullum. Allt í botni í ræktinni og mátti sjá æðisglampann í augum fólks sem safnaðist fyrir framan skjái stöðvarinnar í staðinn fyrir að púla.
Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning