3.12.2006 | 22:31
Bjakk
Mér varð litið upp úr bókfærslunni og sá þá hvernig heimili mitt er umhorfs. Ég held svei mér þá að fjárhúsin heima í sveitinni séu fýsilegri híbýli en íbúðin okkar. Því miður get ég ekki fengið tímabunda skítablindu og þjáist því ógurlega. Hef engan tíma í stórhreingerningar og því er planið að virkja afkvæmin í það á morgun (bannað að kjafta í þau!).
Var boðið í "kaffi" og með því heima hjá Írisi mágkonu. Fínar hnallþórur þar á borðum ásamt dýrindis smákökum. Svo að ég fór með börnin þagnað og lét þau troða sig út af kökum og kallaði það svo bara kvöldmat. Takk fyrir okkur Íris.
Rassatinn þarf á verkstæði. Grunar að bremsurnar séu eitthvað klikk. Best að láta kíkja á það fyrir suðurferð.
Yfir og út!

Breytt 5.4.2007 kl. 15:38 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning