Bæjarferð ójá

Klukkan nákvæmlega rétt tæplega 10 í fyrramálið verður hún ég komin suður til Sódómu. Þarf að reyna að drösla mér upp í KHÍ þar sem ég hafði hugsað mér að ræna bílnum hennar Viktoríu minnar og spóka mig um á honum, á meðan hún situr sveitt yfir skólabókunum. Eftir að hún er búin að svitna þá förum við væntanlega að kellingast eitthvað áður en haldið skal upp í einhvern kofagarm upp við Elliðavatn. Kofagarmur dugar okkur svo sem, við erum vanar ýmsu sveitastúlkurnar sjálfar.
Nýjir heimilismeðlimir hafa bæst í hópinn. Stökkmýsnar Ágúst Óskar og Þórarinn horfa ögrandi framan í Kára og Fóu ketti og ulla feitt. Held að Kári sé að reyna að drekkja þeim í slefi.
Stressköggullinn stækkar í maganum á mér enda ekki nema rétt rúm vika í flutninga og margt eftir að gera. Er samt full af eftirvæntingu og framtíðin er nokkuð björt.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og einum?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband