Ó Ó Ó Ó og smá Á


Ó mig auma! Vesalings vesalings magavöðvarnir mínir! 500 magaæfingar á 3 dögum og vöðvarnir öskra á náð og miskunn. Hlusta ég? Ónei ég labba frekar eins og krypplingur og læt sem ég heyri ekki í þeim. Bjarg er alveg að bjarga mittinu ójá. Bráðum verð ég með alveg nákvæmlega eins maga og David Hasselhoff þegar hann var upp á sitt besta múhahahaha múhahahaha múhahahahaha.
Hitti Sollu mína í mýflugumynd í dag. Hún afhenti mér miða á þorrablótið ógurlega. Veit að það verður í Hrafnagili en hvar nákvæmlega hef ég ekki hugmynd um. Seinni tíma vandamál, geta varla verið svo mörg hús þarna . Á morgun verður sem sagt arkað í mjólkurbúðina og verslað smá söngvatn, líklega í formi ópal/tópas skots og svo væri nú alveg upplagt að skella í sig fríhafnarhvítvíninu fyrst það er ennþá óopnað í ísskápnum. Þorrabakkinn verður þó frekar fátæklegur en það er bara allt í lagi, það á ekkert að borða ónýtan mat. Bannað að hringja fyrir klukkan 16:00 á sunnudaginn!
Annars ekkert nýtt, bara sama gamla tuggan.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og fimm?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband